Heilsuátak

Jæja .... nýja árið byrjað með látum og núna tók ég upp á þeirri vitleysu að hætta að reykja. Ferlega erfitt fyrstu daganna og á þriðja degi voru fráhvörfin að drepa mig. Spenna og svefntruflanir og bara allur pakkinn ..... ég er nefnilega svo vitlaus að gera þetta án hjálpar eða með einhverjum plástrum og tyggjói. Hvað um það .... þetta hafðist af og ég lifði fráhvörfin af og er núna búinn að vera reyklaus í 3 vikur.  W00t

Held áfram að losa mig við lýsið sem ég safnaði utan um mig síðust ár og hef aldrei verið léttari síðan ég gifti mig. Það voru 25 kg sem duttu af mér á síðasta ári og á þessu ári er tamarkið að viðhalda góðri hreyfingu og næringu. Ekki auðvelt í landi skyndibitanna og bílalúgur út um allt.

 Kuldinn er loksins kominn eftir óvenju hlýjan vetur og -10 til -15 stiga frost ekki óalgengt þessa daganna. Brrrr.   Það vorar aftur seinna .....

  


Bara varð ....

Það eru allir í dag með blogg ..... og ég bara varð að segja frá lífinu í Ameríku.

Það hefur margt komið mér á óvart hérna og margt öðruvísi en á Íslandi. Núna datt andlitið af mér þegar ég var búinn með linsurnar mínar og reyndi að fá mér fleiri. Neiiii .... ekki hægt nema vera með augnvottorð sem er innan við ársgamallt (sami staður og ég keypti síðast). OK, gott að vera með reglur þannig að fólk sé ekki að slasa sig á pínulítilli plastfilmu ..... sama fólk getur labbað inn í aðra búð og keypt sér vélbyssu sem er stærri en umferðarskilti og þarf EKKI AÐ HAFA VOTTORÐ (um að það sé heilbrigt, hafi góða sjón, eða slasi sig ekki á þessu).

Margt skrýtið í henni ameríku og fannst sniðugt að byrja svona.....

kemur fleira seinna......


Loksins loksins

Loksins kominn með blog...


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband